Mér finnst Regína og Friðrik frábært tónlistarfólk og þau syngja bæði ótrúlega vel, en mér finnst lagið ekkert það sérstakt. Ég hefði verið til í að sjá Don't wake me up fara út, það var svo allt öðruvísi en öll hin. Kannski er það bara af því að ég er úr sveit, en mér fannst Ho, ho, ho we say hey, hey, hey gott lag. Grípandi og maður fékk það á heilann. (Fyrir þá sem ekki fatta: smalamennskur. Þá segir maður hey eða hó svolítið oft).