Ég er í FVA og lenti í busun á föstudaginn. Það var krotað “busi” á ennið á flestum og svo eitthvað meira. Ég slapp við allt nema busamerkið, ég er með alveg æðislegt ofnæmi og fæ útbrot og nice hluti ef það er krotað of mikið framan í mig. Viðkvæm húð. Svo var okkur þjappað saman í salnum, einhverjir sendir í pose-keppni í gluggunum, einhverjir látnir syngja og dansa uppá sviði. Síðan var okkur smalað út, hellt yfir okkur úldnum ís (sem lyktaði nákvæmlega eins og kókómjólk), rjóma, sinnepi...