20.kafli – Og lífið heldur áfram Fenecca starði upp í loftið í nýja herberginu sínu. Augun voru grængrá og báru merki þess að hún hefði grátið nýlega. Hún vissi ekki ekki hvernig það væri hægt að gráta svona mikið. Samt hafði hún grátið það mikið að það hafði verið eins og augun myndu detta út vegna vatnsmagnsins í þeim… út af jarðarförinni. Hún, Boris, Cita, afi Amador og amma Celerina höfðu setið á fremsta bekk. Kannski eldri bróðir mömmu hennar, Zenon, en hún var ekki viss. Hún hafði ekki...