Þjónninn: Jæja, í dag er ég með reykta tungu, steikta lifur, nýru í kássu og grísalappir. Gestur: Ég var ekki að spyrja um heilsufar þitt. Hún Stína litla… … er svo grönn að í hvert skipti sem hún fer niður að Tjörn kasta endurnar brauði í hana. Fíll og mús voru á leið yfir brú. Fíllinn: Mikið svakalega brakar í brúnni. Ég held hún sé hreinlega að detta í sundur. Músin: Það er nú engin furða þegar við erum bæði á henni í einu. Smáauglýsing: Bolabítur til sölu. Borðar hvað sem er. Hefur mjög...