Næs pósa, fínn bolur, persónulega myndi ég athuga augun, þau passa ekki alveg við restina af myndinni, virka of mikið eins og það vanti bara hvítuna, hjálmurinn er hinsvegar frábær.
Heyrðu góði, ég byrjaði að agnúast útí skoðanir Björns löngu áður en það komst í tísku. Andstaða við að meta hlutina er svo ósköp þægileg ástæða til að vera á móti núverandi ástandi.
þetta er vitlaust uppsett, á að vera: fall hlutfallið = fall^2(hlutur) en ef við myndum taka hlutfall hluta sem falla þá ætti þetta að verða hlutfall fallandi hlutar = fall^2 * hlut^2 (Andri) hér kemur því í ljós að hluturinn hefur skilgreint vægi og heitir Andri.
Það mætti kannski endurskýra korkana eitthvað, en sem stendur raðast þetta svolítið random. Greinafjöldinn er hinsvegar ekki slíkur að það þyrfti nýtt áhugamál. Já, og lithimnulestur myndi eiga heima á /dulspeki.
ah, þú veist, mjög algengt að sjá fólk á pro/semi-pro síðum taka fram að það hafi ekki notað neitt til hliðsjónar, svo aðrir geti miðað sína myndrýni við það, þannig basicly færðu meiri props fyrst þetta var gert án reference, yay! XD
Ég er ekki frá því að í þessi mynd feli í sér ofurlítinn snert af duldri meiningu, það er eins og í fjarska glitti örsnöggt í óljós skilaboð um eitthvað sem kannski var, og þó ekki.
Ég mæli ekki með að þú takir ráðum hér á huga of bókstaflega (nema því sem Damphir sagði). Enginn hér hefur næga þekkingu til að ráðleggja þér með þessi veikindi, þú þarft að tala við sérfræðilækni. Þetta hljómar eins og þú gætir verið með ákveðna ónæmisveilu, en þá er næsta skrefið að finna út í hverju hún felst og fá viðeigandi meðferð, sem þeir ættu að vera vinna í. Ég mæli með þú látir lækninn sem þú ert að hitta hafa útprentun af þessari grein, svo hann hafi sem mestar upplýsingar til...
SSRI eru bærilega niðurgreidd og ekki í sérstaklega háum verðflokki miðað við lyf almennt, þó það sé líklega erfitt fyrir unglinga að standa undir þeim grunnkostnaði. Hvað sem því líður, þá eru peningar ekki aðalatriðið, heldur að vinur þinn fái aðstoð, og ráðleggingar um hvernig á að snúa sér varðandi lyf og fjármál geta komið í kjölfarið.
Ég kann vel við dýnamíkina í þessari mynd, þú nærð svona ákveðnni mýkt í pósuna, kemur vel út. sammála með hendurnar, vinstri olnbogaliðurinn er líka svolítið undarlegur, en myndin er samt einhverveginn pleasing to the eye. Hinsvegar vantar alveg að taka fram hvað þú ert að nota mikið ref!
Allir læknar geta skrifað út lyfseðla. Segðu vini þínum að hann geti leitað á bráðamóttöku geðdeildar á Hringbraut. Allir læknar eru ennfremur bundnir þagnarskyldu, og ef hann vill getur hann leitað til annars læknis á heilsugæslustöðinni. Það er engin skylda að fara eingöngu til heimilislæknis.
Appetite suppressants eru til. Þeir eru hinsvegar ekkert sérstaklega góðir í að meðhöndla yfirþyngd, og venjulega hafa þeir leiðinlegar aukaverkanir. Þeir appetite suppressants sem virka eru hinsvegar skráðir sem lyf, og þ.a.l. ekki seldir í lausasölu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..