Já, ég er búinn að eyða öllum deginum í að finna villur, en bara eftir þig. Því jú, sólin snýst víst í kringum þig. Annars var þetta frekar áberandi villa, og fyndin sérstaklega eftir þetta grobb þitt.
Já auðvitað, ég get reyndar ekki hvartað, fékk að meðaltali 8,4 í einkunn á samræmdu, þau eru ekki jafn mikið mál og fólk heldur. Bara nenna að læra ;) Þú verður að fyrirgefa, en 8,4 og þú skrifar kvarta með hv?
Ég verð að taka í annan streng. Ég hef ekki átt í neinum vandræðum með neinn leik, en get hinsvegar spilað gamla leiki án þess að eiga við þá eins og í XP.
Neh, ég nenni ekki að vera leiðinlegi gaurinn sem verður að finna e-ð sem þú “fílar” ekki. Finnst bara fyndið að heyra að fólk sé “alæta á tónlist” sem er í 95% tilvika algert bull.
Nú jæja! Skólaballi? Það er ekkert skólaball án “Rock'n'Roll Highschool”!!! Reyndar er ungt fólk í dag svo dómhart á tónlist að það sem er “vinsælast” í útvarpinu ætti að slá met ásamt blöndu af frægum 80's smellum.
“Allt” svarar þessari spurningu. Ramones er helvíti hresst. Annars fer það voða eftir því hvernig þú ert t.d gagnvart raftónlist. Bætt við 20. apríl 2007 - 20:01 Þ.e hvernig tónlist þú “fílar helst”.
Ekki? Ég get svo svarið það … annars er ég kominn með Alzheimer Light. Fannst bara hún hafa frekar útblásnar varir í einhverju tónlistarmyndbandi miðað við fyrri tíma. Annars háir það karlkyninu að vera meira og minna blindir á smáatriði þannig að það getur verið að ég sé að rugla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..