þú getur annað hvort tilgreint hluti sem eru óteljanlegir með því að sleppa magninu eða þá að tala um magn sem hægt er að skilgreina… dæmi: ég er að drekka kók ég ætla að fá eina flösku af kóki
rangt, því kók er eins og sykur, óteljanlegt magn… getur ekki farið út í búð og beðið um 1 sykur, heldur poka… að sama skapi: ein flaska af kóki tvær flöskur af kóki eða dósir ef út í það er farið…
Ég vitna í ferðabækling um Ísland sem ég rakst á í Svíþjóð í fyrra. “The glorious country made of ice” “If you don't like the weather, just wait a minute, it probably won't get better but it will get different.” :P
Fyrsta tilboð? Meinarðu ekki eina tilboðið? Besta kostinn… Ingibjörg Sólrún Gísladóttir einfaldlega varð að komast í stjórn þetta tímabil annars væri ferill hennar gott sem dauður, ennfremur þá er framsóknarflokkurinn að mínu mati engu skárri, jafnvel verri. Að mínu mati einnig þá eru þessi evrópumál voða lítið biggie og má alveg salta þetta í 4 ár í viðbór til að einbeita sér að málum sem meiru skipta og mynda öfluga og stöðuga velferðarstjórn.
Ég fór til Sessu og fékk mér industrial og hún einfaldlega krafst þess að fá að setja 2 lokka í fyrst. Ég er þakklátur fyrir það í dag þar sem mín göt voru svona 2 mánuði að gróa en vinur minn er á 9. mánuði og hans er enn í fokki því hann setti stóra pinnan strax. Sessa minntist einmitt á dæmi við mig þar sem götin höfðu tekið allt að ár að gróa vegna þess að stóri pinninn hafði verið settur fyrst.
Ég spurði þig hins sama þegar þú komst til mín á sólstöðuhátíðinni síðustu og sagðist kannast við mig, bjóst í sömu blokk og Ásta frænka mín. svo ég vitni í þig : “Manstu ekki? Við vorum alltaf saman úti að leika þegar við vorum svona 5 ára.” :P
getur vel verið að þeir hafi sótt um einkaleyfi á því, fyrirtæki úti í heimi eiga einkaleyfi á ótrúlegustu hlutum, microsoft á “drop-down” lista, amazon á það að geta keypt hlut með því að smella einu sinni á músarhnapp og etc.
ens303? þrjúhundruð og 3? ég er nýbúinn með þann áfanga, ertu ekki að tala um 103? :P En þegar þú kemur í skólann fyrsta daginn í haust, vertu þá með nafnspjald með Huganafninu þínu á þér svo ég geti eignað mér þig áður en þú verður settur á *hrollur* Busauppboðið.
Hraðbraut? Pant busa þig á næsta ári! :D:D Ég á þennan busa! *tússar “Eign Geira” á ennið þitt* *ræskir sig* Ehm, ertu með 7,5 eða hærra í meðaleinkunn úr Ensku, íslensku og stærðfræði? Ef svo er, þá býð ég þig velkominn í þennan yndislega skóla. ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..