Það er náttúrulega sorglegt að geta ekki fengið eitthvað vandaðra að drekka en tvöfaldann ógeð í Kók, án þess að framvísa leiðbeiningarbækling um hvernig á að blanda drykkinn. Ég hef margoft reynt að fá mér Martini, Kuba Libra, Manhattan, þeim tekst jafnvel að klúðra screwdriver stundum. Eitt það besta var eitt skiptið sem ég bað um Martiniglas, hellti hann drykknum í Longdrinksglas sem stóð á stórum stöfum “Martini”. Þá gafst ég upp. Ef mig langar í einhvern flottan drykk, blanda ég hann...