Saddam Hussein er eins og andi jólanna, það er ekkert hægt að handsama hann og geyma. Annars fannst mér gríðarlega kaldhæðnislegt að hann er handsamaður tíu dögum fyrir jól, lítandi út eins og írakskur jólasveinn með þetta síða skegg sitt, hýr og glaður og samvinnufús og samkv. fréttum sérkennilega dósíll. Kannski var hann svona fullur að jólaanda? Hver veit?