Málið er að Microsoft hefur ekki beitt sér nógu mikið fyrir einfaldleika og gegnsæji stýrikerfa sinna. Viljirðu komast í Administrator-aðganginn sem skapast sjálfkrafa þegar þú setur upp Windows, nema undir sérstökum kringumstæðum, þarftu að ræsa tölvuna í Safe Mode. Til að komast í Safe Mode þarf að styðja á F8 þegar tölvan er ræst, áður en ræsimyndin birtist.