Þú gleymdir að minnast á tribal. Það var rosa mikið í tísku. Annars finnst mér nokkuð kjánalegt að fá sér flúr, sérstaklega einhverja ákveðna “gerð” bara því það er í tísku. En mér kemur náttúrulega ekkert við hvað aðrir gera við líkama sinn alveg eins og öðrum kemur ekki við hvað ég geri við minn.
Ef þú tékkar á reglunum sérðu skýrt og greinilega eftirfarandi klausu: Verð Ef þið hafið spurningar varðandi verð á húðflúrum þá vinsamlegast hafið samband við flúrarana því það eru þeir sem ákveða verðin, ekki við :) Sýnið þeim mynd eða komið með hugmynd að mynd og þeir meta hana til fjárs!
Já, því ég er nógu vitlaus til að borga random manneskju til að vera nakin í webcam þegar það eru ca 34793459238673540239523593460345235 ókeypis klámsíður á netinu.
Það er rosalega margt að mér en ekkert af því tengist þessu. Það fer bara í taugarnar á mér þegar fólk talar um heila hljómsveit sem einn tónlistarmann.
Þar sem ég hef nú ekki látið marga flúra mig þekki ég nú ekki vinnubrögðin hjá öllum persónulega. Samkvæmt því sem ég heyri eru þó flestir, ef ekki allir flúrararnir á landinu mjög færir. Annars mæli ég persónulega með Tattoo og Skart. Fer þangað fyrir allt mitt.
Held að það sé nú eitthvað smá síðan því var breytt. Minnir að kærastan mín hafi talað um þetta í fyrra þegar hún fór til Glasgow. Það var allavega búið að breyta þegar ég fór fyrir nokkrum máuðum..
Aldrei. Ég er frekar over protective á ný flúr. Er einmitt í stökustu vandræðum núna því ég veit ekki hvernig ég á að fara að þegar ég fæ mér næsta. Það verður á bakinu.
Ef þú ert að fá þér gat í fyrsta skipti er mun betra að byrja á byrjendalokk því, eins og ég sagði áðan, er hann lengri og þar af leiðandi eru minni líkur á veseni ef þú bólgnar eða færð sýkingu. Minni líkur á að lokkurinn t.d. festist hreinlega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..