Þó svo að maður sé ekki alltaf til í að viðurkenna það, þá hefur eldri kynslóðin alveg rétt fyrir sér í mörgum tilfellum og veit oft betur en unglingarnir þar sem þeir sem eru eldri eru lífsreyndari. Til að svara spurningunni, þá geta áberandi flúr verið fráhrindandi þegar það kemur að því að sækja um vinnu. Ég hef t.d. heyrt að fólk með sjáanleg flúr þegar það er fullklætt (t.d. á handarbaki, fingrum, hálsi o.s.frv.) er ekki ráðið í lögregluna eða önnur opinber störf. Þetta er samt bara...