Málið er bara að maðurinn reynir alltaf að bæta hagi sína hversu góðir sem þeir eru. Það er ástæðan fyrir því að fólk vælir yfir smávægilegum vandamálum þó að besta vini þeirra hafi verið nauðgað. Hið raunverulega vandamál er, að mínu mati, ekki að fólk sætti sig ekki við að mamma þeirra hafi tekið gemsann af því heldur hvernig það tekst á við vandamálið. Allir vita að væl er hundleiðinlegt og maður vill helst fá að sleppa við að hlusta á það, þess vegna væri betra að tala við mömmuna frekar...