Ég var að lesa grein í blaðinu Nýtt líf um daginn og þar var grein sem kallast “Tarsan kominn úr tísku?”. Þar er meðal annars talað um að nútímakarlmenn plokki á sér augabrúnirnar, liti þær, fari í vaxmeðferðir (fótum, undir höndum og á bringu), gangi í pilsum, máli sig og jafnvel naglalakki sig. Í greininni er reynt að útskýra hver ástæðan gæti verið á þessari breytingu á karlmönnum og niðurstaðan er sú að að meðan konur verði sjálfstæðari og “karlmannlegri” kjósi þær kvenlegri karlmenn....