Ég get samt sem áður fullvissað þið um það að hefðir þú verið þarna þá væri skoðun þín á þessu máli önnur. Og nei, ég er ekki einhver rugludalla MR-ingur sem brjálast þegar MR vinnur ekki allar keppnir… hins vegar verð ég pirraður þegar MR tapar vegna virkilegrar ósanngirni. Ég fór á MH - MR í síðustu viku. Fínasta keppni og allt það nema hvað, HM vann… og veistu, ég var svo fyllilega sammála þeim dómi. MH stóð sig mun betur þar að vígi heldur en MR og því fór ég heim sáttur, annað en í kvöld.