Brátt munu sauðum vængir vaxa, léttfættir svífa af stað. Snótin bíður gullinfaxa, er ríður hann heim á hlað. Komumaður svo við kvað; Eg hefi farið vegi marga og gengið um ótroðna slóð, barist við skessur, tröll og varga, uns óð ég að hnjám þeirra blóð. En þola ég myndi þrautina marga, fyrir knúsin, þau eru góð.