Það skrítna er að ég nota örsjaldan háa hæla, þetta var þriðja skiptið síðan í fyrra eða eitthvað álíka. Ekki má ég heldur vera í alveg flötum skóm, þá valda flatfæturnir mér verkjum upp eftir öllum löppunum. Önnur ástæða gæti verið, þegar ég hugsa út í það man ég, að á tímabili var mér sagt að labba mikið á tánum (ekki í skóm þá heldur bara heima við og þannig) til að lyfta ilinni, sem er alveg niðri í gólfi hjá mér. Það virkaði en gæti líka hafa haft slæm áhrif á liðina, ekki satt? En...