Engel var ekki spilað á fyrri tónleikunum. Hugi.is er himnaríki þar sem guðirnir fá að ráfa um að vild. Því miður þá er sumum fleygt út… Þessir einstaklingar eru fallnir englar, og einn dag munu þeir rísa upp, og þá munu skýin rigna blóði og Engel mun leiða her hinna föllnu inná öll áhugamálin og fylla þau af tilgangslausum skilaboðum sem mun fá Quakara, Trekkara og fleiri einstaklinga til þess að gráta úr sér augun. Eða kannski Engel fái sér bara sígó og slappi aðeins af.