Það er frábært að fá SVONA ódýrar uppskriftir ;o) Ef ég sé framá rosaleg blankheit kaupi ég einmitt stóran poka af pasta (hræódýrt) og tryggi að ég eigi flösku af tómatsósu, og þá kem ég í veg fyrir að svelta þann mánuðinn. Ég reyni samt að eiga tómata í dósum líka, hvort sem þeir eru í teningum eða maukaðir, kryddaðir eða ekki, til að setja út á pasta. Ef ég er með þá ókryddaða þá er uppáhaldið mitt að pressa hvítlauk, skera niður svartar ólífur og krydda svo með svörtum pipar og oregano,...