Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ég er feministi?

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sæll Cujo, Bolirnir fást bæði í Spútnik og í GK karlmenn á Laugarveginum. Kveðja, Femínisti

Elektra Katz

Re: Chicuacua...eitthvað

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var að passa chihuahua um helgina. Ég hafði heyrt að þessir hundar geltu alveg endalaust mikið og stóð mér ekki á sama um það. Annað kom þó á daginn. Frá föstudegi til sunnudags heyrði ég hana aðeins gelta tvisvar sinnum. Eftir þessa 3 daga hef ég aldeilis skipt um skoðun á chihuahua hundum og gæti vel hugsað mér að fá mér einn slíkan. Hún Alex, sem ég var að passa, er líka algjört kúrudýr og finnst ekkert betra en að liggja hjá manni og láta klappa sér. Hentugt fyrir single girl like me ;)

Re: Hárkúr

í Heilsa fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Nei, þetta virkar ekki á einum degi. Sjá betur við svar við hinu bréfinu þínu: “hárlos..??” Var að svara því áðan ;)

Elektra Katz

Re: hárlos!!!!!!!!!!!!!!

í Heilsa fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Já, það er eðlilegt að vera með eitthvað hárlos. Allir missa fjölda hára á dag. Ég hef hinsvegar verið með mikið hárlos - þarf að ryksuga hvítu flísarnar á baðinu eftir að ég blæs á mér hárið og svona. Mömmu og fleirum fannst þetta ekki í lagi en mér fannst ekkert að þessu því ég er og hef alltaf verði með þykkt hár og fannst það ekkert vera að þynnast. Hárvöxtur minn er mikill og ég ætlaði ekki að gera neitt í þessu. Svo keypti mamma handa mér Silica tölflur í apóteki og ég er búin að taka...

Re: Hver er Eurovision eiginlega að fara???

í Söngvakeppnir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Við gáfum Noregi 12 stig en Birgitta var einmitt búin að segja í fjölmiðlum hér á landi að henni fyndist það best. Ég var því ekki sérlega hissa.

Re: Risotto

í Matargerð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mig hefur lengi langað til að kunna að gera risotto. Ég ætla að prófa þessa uppskrift við fyrsta tækifæri. Takk fyri

Re: Hvað á Pizzan að heita? -samkeppni

í Matargerð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Regnbogapizza? Ég hef smakkað grænmetispizzu frá Hróa Hetti með gulum maísbaunum og meira að segja brokkoli. Hún var æðisleg ;)

Re: Sumarið er komið..

í Heilsa fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég stunda frekar líkamsrækt á sumrin en veturna. Ég er ekki þessi týpa sem mætir á líkamsræktarstöðvar - finnst það leiðinlegt. Helst stunda ég sund, hjólreiðar og jóga; og þetta eru allt utandyraíþróttir - nema jóga (nei, ég nenni ekki að hjóla á hjóli sem stendur í stað), svo hjá mér þýðir það “aukin hreyfing” þegar sólin hækkar á lofti. Þetta er því ekki algilt. Oh, hvað það er gaman núna !

Re: Mesta brennslan.

í Heilsa fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mín leið er að hjóla í vinnuna. Ég hef aldrei þolað að stunda líkamsræktarstöðvar. Mér finnst hræðilegt að vera hóptímum þar sem allir labba á alla, fara í sturtu þar sem allir rekast í alla og vera í tómu veseni með að finna skáp fyrir fötin sín. Já, ég er sko jákvæð ;) En það er einmitt af þessum ástæðum sem ég fíla svo að hjóla. Það er líka svakalega góð leið til brennslu því það er svo auðvelt að auka eða minnka hraðann eftir því hvað púlsmælirinn segir. Eftir að ég fékk mér púlsmæli...

Re: Byrjunin, miðtaflið og endataflið

í Skák og bridds fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Takk fyrir þetta yfirlit.

Re: Vínrauður sófi..

í Heimilið fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég er líka með vínrauðan sófa en ég hef hann við hvítan vegg. Hinsvegar hafði ég vegginn á móti sófanum bleikan… Mér fannst sófinn ekki njóta sín nógu vel við litaðan vegg.

Elektra Katz

Re: Bestu hryllingsmyndir sem þið hafið aldrei séð

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég hef séð tvær af þessum myndum: Don´t look now og Raising Cain. Þær eru báðar meiriháttar. Raising Cain á ég meira að segja á spólu en ég leigði Don´t Look now fyrir nokkrum árum eftir að ég fékk þá umsögn um regnkápuna mína að hún væri alveg eins og regnkápan í þessari mynd. Ég fékk ekki að heyra meira nema: “Leigðu þessa mynd og þú lítur regnkápuna þína aldrei sömu augum”. Það var satt :)

Re: BIFREIÐATRYGGINGAR

í Bílar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Jamm, mamma hefur verið tjónlaus í 30 ár og hún fékk viðurkenningu.. svona límmiða fá Sjóvá-Almennum sem stendur á “fyrirmyndarökumaður” og 5 stjörnur. Svona 2 vikum seinna fór í gang leikur hjá Sjóvá-Almennum og Olís og allir gátu fengið samskonar miða til að setja á bílinn sinn nema að í staðinn fyrir stjörnurnar 5 var Olís-merki. Jamm, þeim er umbunað sem eru tjónlausir ;) En án gríns þá er ég sammála.. þetta er fáránlegt kerfi.

Re: Ripped Fuel á Femin.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jæja, það er loksins búið að taka þetta út.. 3 dögum seinna :)

Elektra Katz

Re: Ripped Fuel á Femin.is

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Eins og sjá má af lesti þessara spjallþráða þá eru femin konurnar fúlar yfir því að það sé bannað að selja vörur sem innihalda efedrín hér á landi (nema þá hóstasaft) og tóku því til þess ráðs að auglýsa eftir þeim á femin. Það er því ekki vafi á að þær eru að óska eftir því Ripped Fuel sem er ólöglegt hér.

Elektra Katz

Re: A Beautiful Mind - Þvinguð gæði?

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
sigzi: Eftirfarandi gæti auðveldlega eyðilagt myndina fyrir manni, að mínu mati - melkoro: “Það er t.d gaman að því hvernig sjónarhorn Johns sjálfs er ráðandi framan af. Það gerir það að verkum að áhorfandinn sér heiminn með augum Johns og það er afar óvænt þegar skipt er yfir á sjónarhorn Aliciu og kemur í ljós að það sem hann sér er ekki raunveruleikinn”. Ef ég hefði vitað “sannleikann” hefði þessi breyting ekki verið jafn óvænt. Þetta komment þarf ekki endilega að skemma myndina fyrir...

Re: Réttur dagsins 25.02 2002

í Matargerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Gómsætt! Ég hef eldað svipaðan rétt nema hvað að ég kryddaði fiskinn og eplin með karrýi og hafði engar gúrkur. Það var líka súper.

Re: Hrísgrjón

í Matargerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég var að enda við að slefa yfir SoftIce frá þér og svo les ég þetta.. Mmmm ;) Brilliant hugmynd fyrir fátæka sælkera eins og mig. “..eða bara eitthvað sem er ætt..” ;) Flott!

Re: Softice (kalóríulítill)

í Matargerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mmmmmmmmm þetta hljómar rosa vel! Verð að prófa á næstunni.

Re: Hollir eftirréttir?

í Matargerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Já, það er hægt að nota flesta ávexti og ber í eftirrétti; epli, banana, kiwi, appelsínur, mangó, vínber, jarðaber, plómur, ferskjur, hindber, perur, bláber, ananas… Samsetningin fer bara eftir smekk og svo er hægt að setja jurtarjóma yfir, eins og harpajul nefnir, og einnig skyr, ís, kanil, vanillusykur, íssósu… Ég á enn eftir að smakka nýja jógúrtísinn en held að hann geti verið ansi góður með ávöxtum. Ég fer sjaldnast eftir uppskriftum. Set bara saman það sem mér dettur í hug og það...

Re: Stjörnubíó hættir!!

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Veit einhver hvað á að koma þar sem Stjörnubíó VAR? Af persónulegum ástæðum er mér mjög umhugað um það ;)

Elektra Katz

Re: Requiem for a Dream

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ein besta mynd sem ég hef séð - tvímælalaust! Ég bjóst þessvegna við “einni enn” dópmynd.. en þetta var ótrúlegt! Hún kom mér skemmtilega á óvart.. og síðustu mínúturnar svakalegar. Ég ætla að redda mér tónlistinni úr þessari mynd og svo fæ ég Phi í heimsókn á morgun :o)

Re: Hvernig á að reyna við stráka??

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég vil nú frekar benda þér á að orða hlutina þannig að þeir misskiljist ekki svona auðveldlega. Og ef þú lest hin svörin þá er ég ekki eina manneskjan sem skildi þetta svona. Þegar þú ert búin að tileinka þér þannig skrif skaltu kynna þér lesblindu og þá muntu komast það því að hún lýsir sér ekki svona….. Það er alveg hægt að benda fólki kurteisislega á ef það er að misskilja í staðinn fyrir svona skítkast!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Re: Konur...

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Haltu áfram að velta þessu fyrir þér og þú munt sjá að þú varst að fara villu þíns vegar með því að komast að þessari niðurstöðu.

Elektra Katz

Re: Hvernig á að reyna við stráka??

í Rómantík fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Calaluyna:“…en hann er með stelpu og dæmi. Ég held að mér sé loksins að takast að komast yfir hann.” Oj, hvað þú ert ömurleg að reyna að stela strák frá annarri stelpu!!!!!!!!!!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok