Ég var með Medion 42“ plasma tækið frá BT og það var svo sem ágætt en bmainstone ræddi málin við mig og vegna góðs rökstuðnings hans á þessu tæki fór ég í BT og ræddi við mennina þar og lýsti yfir óánægju minni að ég væri ekki að fá það sem ég borgaði fyrir, þ.e.a.s. HDTV stuðning. Mér til mikillar undrunar buðu þeir mér að skipta yfir í Medion 40” LCD og þáði ég það með þökkum. Hreint út sagt ótrúleg þjónusta BT. Það er eins og þjónustugildið hafi farið verulega hækkandi hjá þeim. Kudos...