Það hafa enn ekki verið settar neinar formlegar reglur um lengd, og/eða gæði greina hér, þannig að enn er eftirfarandi “þumalputtaregla” í gildi, sem ég minntist á í tilkynningu fyrir áramótin: …Stöku sinnum hefur efni verið sent hér inn sem nýjar greinar, sem varla geta þó kallast því nafni. Oft hefur því þó verið “hleypt í gegn”, væntanlega með því sjónarmiði að hlutverk stjórnenda sé ekki að vera gæðaeftirlitsmenn eða ritstjórar, heldur að sía út efni sem ekki tengist áhugamálinu, eða er...