Ég held að þið þurfið ekkert að óttast við að gefa upp símanúmerið ykkar. En það er hinsvegar algjörlega ykkar val. Var frekar að benda á það að þið ættuð til dæmis ekki að gefa upp símanúmerið ykkar ef þið eruð aldrei með síman á ykkur, eða einsog ég nefndi að vera ekki að gefa upp e-mail ef þið lesið hann ekki daglega. Að öðru leyti hef ég verið mjög ánæðgur með samskipti hér á huga, bæði með svörum beint á korkana sjálfa og með prívat skilaboðum.