“Þú getur treyst lækningakunnáttu minni.” sagði Voltranos. “En farðu að hafa þig og Durg tilbúna, við leggjum af stað á morgun við sólarupprás. Einngi vil ég að þú vitir að hún Dinai kemur með okkur, en hún kann sitthvað fyrir sér sem prestur.” Dinai kom í áttina að þeim. “Ég sá hæfni þína og snarræði í baráttu við riddarann áðan, svo ég stakk upp á að þið kæmuð með okkur Voltranosi.” Drepfer virti hana betur fyrir sér. Hún var vel vaxin, og fegur sem morgunroðinn. Hárið var rautt eins og...