Ég ætlaði einmitt að fara að þakka fólki fyrir þáttökuna, þetta var rosalegt mót. Svona ágæt mæting í keppnina sjálfa en áhorfendafjöldinn var mun meiri en við höfðum búist við, eitthvað um eða yfir 150 manns. En ég skal sko viðurkenna að þetta var erfitt, svaf svona 9 tíma þessa tvo daga. En allt endaði þetta vel og fannst mér á mönnum að þeim hafi líkað mótið og umgjörðin. Ég vildi að ég hefði haft meiri tíma til að tala við fólk og heyra hvað því fannst um brautina og mótið en það var...