Næstum því bakbrotið mig, viðbjóðslega vont, morfínið var ekki að gera sig. Braut síðan á mér löppina en það var eiginlega bara út af því að ég var með slitið krossband útaf skíðum. Síðan hef ég eyðilagt á mér andlitið tvisvar á skíðum, annað skiptið rann ég á lyftustaur og í hitt skiptið faceplantaði ég sæmilega á klaka. Krossbandið, fótbrotið og bakmeiðslin gerðust öll á um það bil einu ári, versta ár lífs míns.