Rökréttasta skýringin væri sú að talstöðvarnar í Egilshöllinni væru á svipaðri eða sömu tíðni og einhver þráðlaus “baby monitor” í nágrenninu. Svo þegar barnið skælir þá heyra það mun fleiri en bara mamma og pabbi.
In-A-Gadda-Da-Vida er titillinn en það hljómar eins og “In the garden of eden” ef höfð er heit kartafla í munnninum. Minnir að þetta tengist eitthvað þvi að forðast bann á laginu í útvarpi (þegar það var gefið út).
Þetta lofar vonandi góðu. Að vísu sögðu þeir í upphafi um bæði LCD tækin og Plasma tækin að fyrsta kynslóð þeirra væri með betri mynd en CRT svo að ég vil sjá fyrst bæði gæði og verð. Ég hef aldrei mælt með því við nokkurn mann að kaupa sér LCD eða Plasma ef túputækið gamla er á annað borð í lagi. Ég er líka hræddur um það að þeir sem eru að kaupa sér slík tæki í dag verði með arfaléleg tæki eftir sirka 3 ár.
Hljóðsetning og vinnsla hefur greinilega verið trössuð allverulega í þessu lagi. Þetta nær varla þeim standard að vera demo. Þarna var á ferð lag sem átti möguleika á að verða næsti Crazy Frog but noooooo…. Það er verið að flýta sér því þetta er svo fyndið (locally) og brandarinn ekki nægilega vel útfærður í endann. Drasl.
Banna reykingar svipað og Skotar og írar og svíar og allir hinir sem eru búnir að setja fram þessi fínu bönn. Þá yrði loksins hægt að fara á kaffihús og njóta þess að vera þar.´ Ég fer aldrei á kaffihús nema ég neyðist til þess bara útaf viðbjóðslegu reykingastybbunni sem verður af manni alltaf þegar er farið. Allt tal umáð kúnnar hverfi er bull. Það munu koma fullt af reyklausu fólki (sem kemur ekki í dag vegna fýlunnar) þegar búið er að eyða stybbunni af þessum stöðum.
Ég fékk mér Flip4Mac fyrir 2 vikum. Alger snilld! Mæli með þessu forriti. Ég vildi aldrei installa Media Player eða öðrum spilurum og sætti mig bara við að sjá nær aldrei video klippur af netinu nema þær væru í Quicktime en með Flip4Mac er þetta allt annað :) Tók mig smá tíma að fá forritið til að virka almennilega en það fylgir hnitmiðuð og gagnleg ReadMe skrá svo að með því að fara í gegnum smá stillingaprocess í Preferences þá er Makkinn minn loksins byrjaður að spila allt sem mig langar að sjá.
Þetta er það sem kom síðast út um úgáfu á MITM season 1 2002-11-28 08:36:24.0 We've had a couple of enquires about “Malcolm in the Middle” showing up on DVD in the U.K. We understand that if the release is to go ahead it won't be until February 2003 at the earliest. More news when we have it. Síðan þá hefur ekkert heyrst. Líklega rétt hjá þér. Leti í Fox.
Þær virka fínt með einmitt multi region (fjölkerfa) DVD spilara. Á fullt af DVD myndum frá USa og þær virka allar pottþétt. Það er bara orðið glatað hvað mikið er sett af “Do not copy this DVD” skilaboðum í alla diska en það er að gerast líka hérna heima svo að næsti spilari sem ég vil fá yrði að vera með fítus sem hundsar allt sem er skráð “bannað að skippa og hraðspóla” svo hægt sé að kötta á þennan ófögnuð. Ég vil sjá myndina en ekki óskippanlegar hálvitaauglýsingar!
http://www.rexfeatures.com/features/516925/hi-res/516925s.jpg http://www.rexfeatures.com/features/516925/ Þesi er viðurkenndur sem ljótasti bíll í heimi. Multipla, Yaris og allir hinir sem búið er að nefna eru gullmolar við hlið þessa bíls.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..