Vinna fyrir börnunum, nýja bílnum, flottara sjónvarpi, gemsa, fara út að borða nokkrum sinnum í viku og skipta sér síðan ekkert að uppeldinu né eyða yfir höfuð tíma með ungunum sínum. Ég er foreldri sjálfur og ég hef lofað sjálfum mér að lenda aldrei í þeirri gryfju. Kannski verð ég ekki eins materíalískur, með eins flottann bíl né jafn flott sjónvarp og Gunni í næsta húsi en ég verð þó betra foreldri.