Persónulega finnst mér ekki gaman þegar vinir mínir eru að blaðra í símann þegar við erum að hanga saman, og mér finnst heldur ekki gaman að blaðra í símann þegar vinir mínir eru í kringum mig. Þetta þarf ekkert að vera eitthvað persónulegt, þegar maður er með vinum sínum vill maður bara hafa alla athyglina á þeim og því sem þeir eru að segja en ekki vera að tala við einhvern annan í símann. Maður vill oftast hafa ró og næði þegar maður er að tala við einhvern í síma, sérstaklega ef það er...