Að drekka viskí er ekki fyrir hvern sem er. Mörgum hryllir við tilhugsunina um óblandað viskí og skiptir þá engu máli hvaða tegund er talað um, þetta er víst allt eins. Hinn harði viskímaður fussar náttúrulega yfir þessari staðhæfingu meðan hann hugsar til sinna 14 mismundandi flaskna af vatni lífsins í kjallaranum. Til eru ótal gerðir af viskíi; malt viskí, búrbon, rúg viskí, skoskt, írkst, eikarviskí og fleiri sem við þekkjum ekki en ég ætla nú ekki að fara í saumana á viskíheiminum, af of...