Samt tap í þriðju lotu, þannig hann hefur ekki látið taka sig létt. Spennandi trekantur í gangi þarna. Það er að segja, ef þessi orðrómur er réttur. Halli staðfestir það væntanlega á næstunni eða skammar okkur fyrir að vera að dreifa gróusögum :)
Ég var áður búinn að sjá menn þarna minnast á hversu gaman væri að sjá þá tvo slást. Þannig einhverjir þarna úti sem þekkja til beggja halda að þetta verði spennandi matchup…sem það yrði pottþétt. Ég hef ekki mikið lesið um Fadoria en mér heyrist hann vera smá phenom sjálfur. Svona gaur sem er á góðri siglingu, er ósigraður og vekur miklar vonir. En faðmurinn á Gunna er staðurinn þar sem vonir fara til að deyja.
Einhver orðrómur á Cagewarriors foruminu um að annar bardagi sé ákveðinn í September við gaur með 9-0 pro record :). Skrifa það ekki dýrara en ég las það.
Ég á erfitt að sjá Wand fyrir mér sem vinalegan. Kannski af því hann lítur út eins og rakaður órangútan og ég hef aldrei séð hann gera neitt nema reyna að drepa einhverja gaura í búri.
Hjúkk. Ég var farinn að óttast um að goðsögnin mikla myndi lesa þetta með google translate og refsa þér með banvænum fótalás. Það vita allir að bardagahæfileikarnir fóru óskiptir til Ken. Sumir rugla þeim bara saman og halda þess vegna að Frank kunni að slást.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..