Syngið syngið fuglar syngið henni ljóðin mín, að ég elski hana meðan sólin skín og hafið kyssir bergið við sjávarströnd. Að ég dái hana eins og svanirnir sem dásama dimmblá heiða og fjallavötn, að ég deyi fyrir hana eins og nóttin fyrir degi. Syngið henni, að með síðasta blóðdropa myndi ég vökva rósina mína á heitum sólar degi.