þær höfðu spilað og sungið við vegkantinn allan daginn blinda stúlkan og augun hennar, í kvöldblænum settust þær niður er blásvartir skýjabólstrar hlóðust upp á heiðríkan vesturhimininn, skuggar efstu húsanna í þorpinu þeirra teygðu sig niður á gullroðinn akurinn í brekkunni fyrir ofan veginn. Ó systir ég sé dýrðlegan regnboga fyrir ofan bæinn okkar, æ bara að þú gætir verið upp í skýjunum og fundið hann ég er upp í skýjunum elsku litla systir mín meðan ég á þig sólina og regnið.