Já ég veit ekki. Ég hef heyrt ótalmargar sögur frá vinum og ættingjum þar sem þeir sjá þetta. Hinsvegar hef ég aldrei séð þetta eða fundið sérstaklega fyrir þessu. Ég sætti mig helst við þá útskýringu að við sjáum bara það sem við “viljum” sjá. Heilinn í okkur er fær um að gera ýmislegt - við getum séð hluti, við getum heyrt hluti, við getum framkvæmt hluti án þess að hafa nokkurntímann séð þá, heyrt þá eða framkvæmt. Heilinn segir okkur bara að þeir hafi gerst.