Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa ákveðið að banna sölu og leigu á tölvuleiknum “Manhunt”, en um er að ræða fyrsta tölvuleikinn sem er bannaður þar í landi. Kvikmyndaeftirlit landsins segir að leikurinn lýsi svo miklum hryllingi, grimmd, glæpum og ofbeldi að hann sé fólki skaðlegur. Bill Hastings, yfirmaður stofnunarinnar, segir að framleiðendur tölvuleikja hafi tilhneigingu að ganga skrefi lengra en “Manhunt” hafi gengið talsvert lengra en allir aðrir sem skoðaðir hafa verið hjá stofnuninni....