Já þetta er samt í lagi núna.. Þeir eru farnir að borða og drekka eins og engin sé morgundagurinn og þeir eru mikið farnir að syngja/tísta. Mjög gaman að hlusta á þá, og svo virðast þeir vera búnir að búa sér til leik þar sem að þeir stökkva á milli prika. Lítur út eins og þetta sé mjög skipulagt hjá þeim. Þegar einn stekkur á prik sem hinn er á þá á hinn að hoppa af því á eitthvað annað. Svona gengur þetta, og ég veit vel að þeir eru ekki að hoppa af prikinu því að hinn er kominn á, þeim...