Það eina sem ég er svona virkilega spenntur fyrir að heyra er annars vegar Sparta (hef aldrei heyrt neitt í þeim, en heyrt margt gott UM þá) og Korn, þó ég sé nú ekki neinn sérstakur aðdáandi eins og í gamla daga. Weezer mögulega líka, þó ég hafi fljótt orðið þreyttur á græna albúminu. Annars leynist ábyggilega margt gott þarna. Svona ef lengra er litið þá get ég varla beðið eftir RATM/Chris Cornell, held að það verði mögnuð blanda.