HANDBOLTAÆFING í dag í Borgarnesi. Verður í húsinu þar sem sundlaugin er bara í staðin fyrir að fara í búningsklefana uppi þá fer maður í búningsklefana niðri. Það er must að hafa skó þar sem að það er hryllingur að spila á tánum. Koma líka með stuttbuxur og bol, eða buxur ef ÞÚ ætlar í mark, samt erum við með 3 markmenn, bronze, Sigurjón og mig en Sigurjón hefur ekkert verið að mæta á æfingar og ef það kemur annar markmaður þá fer ég örugglega í skyttuna. Æfingin verður frá 18:00-19:00...
Þetta er sá leikur sem ég hef skorað mest eða 2 mörk. En ég var Maccelsfield og tapaði 24-2 á móti Chester. Lee Martin annar af markaskorurunum mínum spilar yfirleitt mark.
Ég er með 3. spurningar. 1. Er eikkað aldurstakmark til að mega æfa box??? 2. Ef það er já við fyrri spurningu þá er hægt að æfa box í Borgarfirðinum, þá helst Borgarnes eða Akranesi??? 3. Hvað kostar að byrja að æfa box???
Kvennaliði Vals hefur bæst liðsauki fyir næsta leiktímabil. Alla Gokorian er komin á Hlíðarenda ásamt einni efnilegustu handboltakonu landsins, Rebekku Skúladóttir en hún var í ÍR. Alla á eftir að styrkja Valsliðið til muna. Alla, sem hóf einmitt ferilinn hér á landi á hlíðarenda, hefur um árabil ein sterkasta handboltakona landsins, en eftir að hún fór frá Val þá spilaði hún með Gróttu/KR en síðan fór hún út í Eyjar og spilaði með ÍBV. Rebekka Skúladóttir er þrátt fyrir ungan aldur farin að...
Ég ætla að reikna það út hvað ég hljóp mikið í gær. Upphitunarhringur=400 metrar, skokk Grindahlaup=80 metrar, Sprettur Ná í peysuna mína= 100*2 metrar, skokk Spretthlaup= 100 metrar, sprettur Langhlaup= 800 metrar, 1,5 hringur skokk hitt sprettur eins og ég gat Langstökk= 15*4 metrar, sprettur. Skokk=1200 metrar Sprettur=440
Ég keppti í piltaflokki í héraðsmóti UMSB með fínum árangri miðað við það að ég hef aldrei farið á mót áður. Fyrri dagur: Spjótkast: 12,74 metrar 5-6.sæti Hástökk: 1,15 metrar 4.sæti Kúluvarp: Afskráði mig Annar dagur: Langstökk: 3,32 metrar 4.sæti 80 metra grindahlaup: 2.sæti í mínum riðli, hefði náð þessu hefði ég ekki rekið tána í eina grindina, annars var ég í 4.sæti með hinum 2.riðlunum. 100 metra spretthlaup: 1.sæti í mínum riðli, 3.sæti með hinum 2.riðlunum. 800 metra langhlaup:...
Núna fer handboltaáhugamálið að deyja í eikkern tíma þar sem eini virki stjórnandinn, Loecker, er að fara á Partille cup í Gautaborg í Svíþjóð. Sem þýðir að engar myndir, greinar eða kannanir verða samþykktar. Sem er fúlt fyrir þá sem nota mest þetta áhugamál t.d. ég. Allavega ég bíð mig fram sem bráðabirgðastjórnanda á handboltaáhugamálinu og ég býð mig fram sem stjórnandi yfir allt árið. Hvernig verð ég stjórnandi???
Ég skoðaði gestabókina á bloggsíðunni minni fyrir stuttu og þá var þetta nýjast í gestabókinni: 28.06.2005 23:29:16 » seigi ekki » http://seigi ekki seigi ekki lærðu að skrifa nördinn þínn Ég spyr bara hver á að læra að skrifa ég eða hann. Ég fékk 10. í stafsetningu og þessi hefur fallið, hehe
Ég kastaði 12,74 metra í spjótkasti og hef einu sinni kastað áður, en þá vildi ég ekki kasta meira vegna þess að ég var hræddur um að drepa eikkern. Allir inn á heimasíðuna mína og kvitta í gestabókin http://blog.central.is/nesi92
Skoska landsliðið auglýsir eftir fólki til að spila handbolta með skoska landsliðinu, bara fyrir þá sem mega spila fyrir Skotland. http://www.scottishhandball.com/national/index.html Það er pæling bara að redda sér skoskum ríkisborgararétt, hehe.
Ég var að pæla hvernig fær maður stig þannig að það verði slétt tala t.d. ég er með 2749 stig og langar að fá slétta tölu. Hvernig fæ ég slétta tölu???
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..