Ekki kom það mér ýkja á óvart að Arsenal lagði mína menn í Tottenham sl. helgi. Varalið Spurs var þar á ferð og nú þarf að fara að skipta annaðhvort um mannskap á sjúkradeild White Hart Lane eða þjálfunartaktík. Í 5-6 ár núna hafa verið að meðaltali 3-4 lykilmenn meiddir í hverjum mánuði á leiktímabili. Þetta er hætt að vera fyndið. Campbell, Carr, Rebrov, Sherwood, Thatcher, Taricco, Leonhardsen og svo auðvitað konungur sjúkrastofunnar, Darren Anderton, voru allir fjarverandi á móti...