Þú neitar því ekki að liðið var ekki í kjörstöðu fjárhagslega séð tímabilin áður en Abramovich keypti það, liðið var að ráða menn á háum launum (flestir fyrrum stjörnur komnir yfir það) án þess að skila titlum. Liðið hafði ekki náð þeim stöðugleika sem nauðsynlegt er til þess að leyfa sér svona leikmannakaup og hægt er að færa rök fyrir því að fyrir liðinu hafi legið svipuð örlög og höfðu legið fyrir Leeds United nokkrum tímabilum fyrr, hefði rússinn ekki keypt liðið. Hver veit, kannski...