Já, ég fékk hálfgert sjokk þegar ég las þetta á mbl.is, en reyndar mjög langt síðan Syd Barrett yfirgaf þessa jörð, maðurinn sem lést núna á föstudaginn hét Roger Keith Barrett og hafði heitið það lengi, hann svaraði ekki nafninu Syd, einfaldlega vegna þess hann hafði ekki hugmynd um hver það var, held ég. En þó svo að þetta séu dræm tíðindi að þá er hægt að hugga sig við eitt, miklar líkur eru á minnigartónleikum um hann, endurkoma PInk Floyd á einum tónleikum er kannski á næsta leiti.