Það verður auðvitað að hafa vit fyrir fólki, hvernig á fólk að geta valið sér morgunkorn sjálft? Þegar stórt er spurt er fátt um svör. Kelloggs Kornfleks er það eina rétta, og það verður að tryggja það að allir borði það, annað getur skaðað heilsu þjóðarinnar, ekki viljum við það? Þú átt eftir að þakka ríkistjórninni eftir 20 ár þegar Ísland verður krabbameins og sykursýkisfrí paradís. Þegar allar aðrar þjóðir hafa nánast liðið undir lok og Ísland verður ráðandi afl á heimsmarkaðnum, þú...