Ég er ekki alveg að botna í þessar könnun sem er núna í gangi. Hún hljóðar svona: Hvort heldur þú meira upp á, Snorra Sturuson eða Egil Skalla-Grímsson? Snorra, pottþétt! Egil, tvímælalaust! Báða bara:) báðir ágætir karlmenn Bækur Snorra, en annars Gissur.. Hlutlaus/Annað Af hverju inniheldur möguleiki þrjú manninn Gissur? Og hvernig á maður að vita um hvaða Gissur er umræddur hér? Og síðan finnst mér þetta hálfasnaleg könnun þar sem þú getur ekki borið Egil og Snorra saman. Báðir mikilmenni...