Ég hef meira að segja heyrt að maður geri þetta alltaf þegar maður sofnar, á hverri nóttu, en þá heldur maður bara að maður sé einhvers staðar allt annars staðar og maður upplifir alls kyns ofskynjanir (þetta er almennt kallað draumar). Ég get vel trúað að þegar þetta gerist þá sé fólki að dreyma þetta, en það að það sé raunverulega hægt að fara út úr líkamanum trúi ég ekki.