Hvað er eiginlega málið, hvert er stefnir Visual Studio. Núna rétt í þessu ætlaði ég í mestu makindum að fara að vinna áfram í litla OpenGL draslinu sem ég var að fikta í. Ég opna Visual Studio smelli á compile til að gá hvort allt sé ekki örugglega villulaust og ætla að hefjast handa. En nei, fæ ég ekki einhvern skemmtilegan error um að hún geti/kunni ekki að kompila main.cpp (man ekki nákvæmlega hvernig þetta var á útlensku). Ég prófa aftur, vista svolítið, prófa en meira og tek svo upp á...