Jæja, ég var frekar pirruð er ég skrifaði þetta. En í raun, þá hefðu þær getað sýnt Unni Birnu þá virðingu að annaðhvort óska henni til hamingju, eða láta bara kyrrt sitja. Þó svo að þær hafi kannski ekki skítkastað hana eitthvað persónulega, þá myndi ég samt taka það nærri mér ef ég hefði verið að vinna eitthvað eins mikilvægt og hún (og já ég segi mikilvægt þegar hún er að fara að hjálpa börnum í neyð) þá hefðu þær að MINNSTA kosti getað bara setið kyrrar, og leyft henni að njóta þessa, en...