Ég vona að Íranir nái ekki að búa til kjarnorkuvopn… hljómar voðalega kunnuglega, en málið er að það er svo raunveruleg ógn sem stafar af þeim við Vesturlönd. Ef það kemur til stríðs, sem ég vona svo sannarlega að gerist ekki, þá finnst mér að Vesturlönd ættu að sýna samstöðu því að annars þá mun það verða okkur að falli. Þó svo að það séu ekki allir hlynntir stríði, sem að er algjörlega skiljanlegt, þá er skárra að það fari svo heldur en að einhverjir bandóðir menn nái að skjóta...