Ég græt, tárin renna hægt niður kinnarnar á mér. Ég er sár því ég veit ekki hvert ég stefni. Ég vil vita hver framtíð mín mun verða, ég verð. Ég stari á hnífinn sem hvíslar að mér að það sé best að binda enda á þetta sorglega líf. Mig langar en ég bara get það ekki, það er svo margt sem ég á eftir ógert. En hnífnum er sama, sker mig á púls. Ég öskra, sárkvalinn, finn ekki fyrir sorginni, finn bara frið. Blóðið rennur, ligg í eigin blóðbaði. Ég dofna, Loks finn ég frið. Loka augunum, læt mig...