Mér persónulega finnst kjánalegt að gera tilraun til þess að “hjálpa” fólki sem fremur glæpi eins og morð. Ég hugsa ekki um fangelsi sem betrunarhús heldur refsingu. Ekki einu sinni bara refsingu, heldur einnig leið til þess að halda þessum vesalings “veiku” einstaklingum af götunum.
Fer hugsanlega til útlanda, ef ég fer ekki þá er það útaf peningaskorts vegna meiðsla sem ég er að glíma við. Foreldrar mínir eiga litla peninga og kaupa þess vegna ekki hluti fyrir mig. Hinsvegar þarf ég ekki að gera annað en að biðja þau um eitthvað þá fæ ég það eins og skot, geri það samt sárasjaldan. Þau eru yndisleg og lífið er yndislegt.
Djöfull eruði heimskir. Reykingar eru leyfðar utan dyra alveg eins og að keyra bíl, þú mátt ekki keyra bíl inná skemmtistað. Það sem þið eruð að segja, “á ekki bara að banna bíla”, jújú, það væri alveg hægt en þá yrði líka alveg eins bannað að reykja ALLSTAÐAR.
Hvar á að draga mörkin? Ég býst við því að flestir bílar séu úti þegar þeir blása frá sér þessum mengandi reyk, ekki inni í þröngu rými sem er fullt af fólki. ( geri mér fulla grein fyrir því að útblástur bíla er mun hættulegri en sígarettureykur, þarft ekki að taka það fram í næsta svari þínu :).
“Ég þoli ekki fólk eins og þig! Fær góðar einkunnir en þarf ekki að leggja neitt á sig fyrir þær. =/” “Það er nú ekki neitt af þessu meðfætt þannig þú getur gert ráð fyrir þvi að hann hafi lært sitt jafnt og þétt.” Hvernig getur þú sagt að mitt innlegg sé lélegt þegar það er augljóst að þú varst ekki að tala um að námsefnið sem verið er að prófa úr sé ekki meðfætt ( ef þú varst að því þá komst það illa til skila. ). Þessi einstaklingur sem sagðist ekki þola fólk sem þarf lítið sem ekkert að...
Ekki neitt af þessu meðfætt? Þú veist greinilega ekkert hvað þú ert að tala um, hefur þú heyrt um erfðir? Auðvitað er þetta meðfætt ( stór hluti ). Hann er ef til vill svipaður og ég, var að fljúga í gegnum 3 bekk í MS og ég læri.. varla neitt. Góðu fréttirnar fyrir sum ykkar sem viljið fljóta í gegnum menntaskólann án þess að læra og hafa skemmtilegt þá er það hægt, það er aftur á móti ekki hægt í háskóla :) bömmer.
Nokkuð augljóst að þeir drukku bjórana sjálfir, hefði gert það sama í þeirra sporum. Engin sönnunargögn fyrir því að þeir hafi tekið bjórana, auðvitað drekka þeir þá.
Ég veit ekki með þig en að þetta hafi verið mistök hjá greyið kallinum finnst mér nokkuð “irrelevant”. Svona svipuð afsökun og menn sem berja konurnar sínar nota, “úps, ég gerði þetta óvart, þú veist að ég myndi aldrei meiða þig”.
Í fyrsta lagi þarf ekki að dangla í hest til þess að temja hann. Í öðru lagi talar þú um að hann sé ekki sá eini og að margt annað verra hafi gerst í samfélagi. Það er alveg rétt að það eru og hafa verið gerðir mun verri hlutir við dýr en það afsakar ekki það sem þessi maður gerði ( hvort sem þú vilt meina að það hafi verið lítið eða ekki ). Það er hægt að nota þessi rök um allt mögulegt í samfélaginu, HEY! þessi lúbarði mann og komst upp með það! þá hlýt ég að mega gera það líka án...
Er ég að lesa á milli lína og snúa út úr? Ertu eitthvað geðveikur? Skrifaðir skýrt og greinilega í svari þínu að ef þú vilt gera eitthvað úr hestinum þarf að beita hörku. Síðan ertu með dónaskap við alla sem svara þér eins og þú vitir allt betur en aðrið og sért greindastur í öllum heiminum? Djöfull ertu mikið fífl.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..