Aspect, þú virðist falla í sömu gryfju og margir aðrir trúaðir einstaklingar, þó að ég viti svo sem ekkert hvort þú sért trúaður eða ekki. Gryfjan er sú, að vissir einstaklingar byrja að nefna hluti sem að vísindin hafa ekki skýringu á og nota það sem rök á móti hinum og þessum kenningum og lögmálum innan vísindanna. Það er frekar heimskulegt þar sem allir sem hafa áhuga á vísindum gætu sagt þér og þessum einstaklingum að vísindin eru ekki með SVÖR VIÐ ÖLLUM SPURNINGUM. Svörunum fjölgar...